Ársskýrsla 2025

Ávarp rektors Háskóla Íslands, Silju Báru Ómarsdóttur

Háskóli Íslands er þjóðskóli sem menntar fólk á fjölbreyttum sviðum og til margvíslegra starfa. Sem slíkur gegnir hann mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Þar eru auk þess stundaðar alþjóðlegar rannsóknir sem eru undirstaða öflugs námsumhverfis og færa nýja þekkingu inn í samfélagið á öllum sviðum. Í krafti þessa er háskólinn drifkraftur nýjunga en um leið mikilvæg kjölfesta þegar takast þarf á við óvæntar áskoranir á borð við náttúruvá, smitsjúkdóma og efnahagsáföll.

Vísindagarðar Háskóla Íslands er mikilvægur vettvangur fyrir Háskóla Íslands til að rækja samfélagslegt hlutverk sitt. Með þeim gefst tækifæri til að brjóta upp hefðbundið skipulag skólans og leiða saman ólíka hópa innan hans. Þar getur starfsfólk og nemendur frá fræðasviðum skólans unnið með fólki frá öðrum háskólum, fyrirtækjum, stofnunum og frumkvöðlum að margvíslegri nýsköpun og tryggt að jákvæð áhrif hennar skili sér út í samfélag og atvinnulíf í formi verðmætasköpunar, aukinnar framleiðni, betri heilsu, aukins jafnréttis og bættra lífskjara fyrir sem flesta.

Samhliða því að Vísindagarðar tengja saman fólk úr ólíkum áttum þá hafa þeir líka hlutverk við að samnýta rannsóknainnviði. Til að halda uppi öflugu rannsóknastarfi og hagnýta það, t.d. í formi nýsköpunar eða í þágu þjóðaröryggis er iðulega þörf á rannsóknainnviðum í formi háþróaðs búnaðar og tækja. Með tilkomu stafrænnar tækni og gervigreindar eru slíkir innviðir í vaxandi mæli stafrænir og m.a. í ljósi þróunar alþjóðamála er mikilvægt að þeir séu í einhverjum mæli til staðar innanlands. Í fámennu samfélagi er mikilvægt að fjárfestingar af þessu tagi nýtist sem flestum og æskilegt að Vísindagarðar leggi sitt af mörkum til að það nái fram að ganga.

Á síðustu áratugum hafa Vísindagarðar Háskóla Íslands byggt upp öfluga starfsemi í Vatnsmýrinni í samstarfi við stjórnvöld og atvinnulíf. Ég hef mikla trú á áframhaldandi uppbyggingu hennar og við í Háskóla Íslands viljum leggja okkar af mörkum til að hún verði að veruleika. Þannig tryggjum við að Háskóli Íslands verði áfram drifkraftur nýjunga í íslensku samfélagi og kjölfesta þegar takast þarf á við óvæntar áskoranir.

Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands

Ávarp stjórnarformanns, Sigurðar Magnúsar Garðarssonar

Samkeppnishæfni Íslands á komandi árum mun ráðast af því hversu vel okkur tekst að umbreyta þekkingu í verðmæti. Þar gegna Vísindagarðar Háskóla Íslands mikilvægu hlutverki. Á undanförnum árum hefur starfsemi Vísindagarða eflst samhliða auknum vexti þekkingarhagkerfisins á Íslandi. Í Vatnsmýrinni höfum við byggt upp samfélag og aðstöðu með áherslu á verðmæti hugvits og hringrás vísinda og nýsköpunar. Hlutverk Vísindagarða er þannig að stuðla að enn frekari verðmætasköpun sem er drifin áfram af þekkingu.

Áherslur á lífvísindi, tækni og skapandi greinar endurspegla bæði styrkleika svæðisins og vaxtartækifæri sem liggja fyrir. Markmiðið er að búa til hagfelldar aðstæður fyrir fleiri sprota, fleiri fyrirtæki, fleiri störf og aukin verðmæti, samfélaginu til heilla. Vísindagarðar eru þannig lykilaðili í innleiðingu nýrrar atvinnustefnu, þar sem markmiðið er að auka verðmætasköpun og styrkja samkeppnishæfni Íslands til framtíðar, þar sem í kjarna starfseminnar er samspil háskóla, atvinnulífs og stjórnvalda. Það er dýrmætt að horfa til þeirra aðila sem þegar hafa markað spor sín á svæðinu og laðað að hæfileikafólk og fjárfestingu, þar sem öflugt vistkerfi þrífst ekki án öflugra bakhjarla.

Fyrir Háskóla Íslands eru Vísindagarðar jafnframt mikilvæg framlenging á starfseminni. Hér fær þekkingin farveg út í samfélagið þar sem tenging rannsókna og nýsköpunar verður markvissari. Uppbygging djúptækniseturs er næsta stóra skrefið þar sem með öflugum rannsóknarinnviðum og sérhæfðri aðstöðu verða til forsendur fyrir þróun verkefna sem krefjast sérþekkingar, fjárfestinga og þolinmæði. Þar liggja tækifæri til að styrkja stöðu Íslands í alþjóðlegri samkeppni.

Framundan eru skýr verkefni: að styrkja innviði nýsköpunar, stuðla að áframhaldandi uppbyggingu þekkingarhagkerfisins og að Ísland standi styrkum fótum í alþjóðlegri samkeppni.

Ég þakka stjórn og starfsfólki Vísindagarða fyrir faglega og ötula vinnu; saman mótum við framtíð sem byggir á þekkingardrifinni verðmætasköpun.

Að lokum vil ég færa Svöfu Grönfeldt sérstakar þakkir fyrir forystu í stefnumótun Vísindagarða sem nýtist okkur við að efla starfsemi Vísindagarða til framtíðar.

Sigurður Magnús Garðarsson, stjórnarformaður Vísindagarða HÍ

Ár framfara á Vísindagörðum HÍ

Á Vísindagörðum blómstrar samfélag þar sem háskólar, fyrirtæki og rannsóknarstofnanir vinna saman að skapandi lausnum á helstu áskorunum samtímans

Síðastliðið ár var ár framfara fyrir Vísindagarða Háskóla Íslands. Með auknum tekjum og fjölbreyttari starfsemi tókst félaginu að styrkja stöðu sína enn frekar sem leiðandi afl í nýsköpun og þekkingarsköpun á Íslandi. Lögð var áfram sérstök áhersla á að efla sprotaumhverfið, grunnrannsóknir, dýpka tengsl við atvinnulíf og háskólasamfélag, auk þess að skapa vettvang fyrir áhugaverða viðburði tengda nýsköpun og vísindum í Vatnsmýrinni. Samhliða þessu hefur félagið unnið markvisst að því að þróa svæðið og efla samfélagið til að laða að nýja samstarfsaðila og kynna lausar lóðir.

Stjórn

Á aðalfundi Vísindagarða sem haldinn var 24. mars 2025 voru eftirtalinn kosinn í stjórn Vísindagarða HÍ:

  • Sigurður Magnús Garðarsson

    Formaður stjórnar

    Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ.

  • Linda Jónsdóttir

    Stjórnarmaður

    Fjármálastjóri Alvotech.

  • Kristinn Aspelund

    Stjórnarmaður

    Framkvæmdastjóri Ankeri ehf.

  • Arna Hauksdóttir

    Stjórnarmaður

    Prófessor og forstöðumaður í lýðheilsuvísindum.

  • Óli Jón Hertervig

    Stjórnarmaður

    Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg.

  • Anna Sigríður Ólafsdóttir

    Varamaður í stjórn

    Prófessor og fráfarandi forseti deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda við Menntavísindasvið HÍ.

  • Stefán Þór Helgason

    Varamaður í stjórn

    Þjónustu- og viðskiptaþróunarstjóri hjá
    Fjársýslu ríkisins

Stefna og staðfæring

Við lok árs 2024 fóru Vísindagarðar í stefnumótunarvinnu sem tilraunaverkefni með MIT DesignX og ENNEMM, leidd af Dr. Svöfu Grönfeldt. Áfram var unnið í þeirri vinnu á árinu. Nú er komin skýr stefna, með framtíðarsýn, hlutverk, stoðir og áherslur. Í framhaldinu var síðan unnin staðfæring fyrir Vísindagarða. Sjá nánar hér.

„Á Vísindagörðum segjum við spennandi sögur um framtíðina“

Fjármál

Tekjur félagsins á árinu 2025 námu 1.080 m. kr. og eru tilkomnar af leigu húseignarinnar að Sturlugötu 8 sem hýsir Íslenska erfðagreiningu ehf., leigu á byggingarrétti að Sæmundargötu 15-19 og 21, þar sem Alvotech hf. rekur hátæknisetur og af byggingarétti að Bjargargötu 1, þar sem Gróska ehf. rekur Grósku. Tekjur félagsins hækka um 31 millj. kr. milli ára eða um 2,98% og taka að mestu breytingum samkvæmt breytingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Aðrar breytingar eru vegna útleigu bílastæða, skrifstofu og skrifborða. Langtímalán félagsins eru að mestu verðtryggð með sömu vísitölu.

Áfram hefur verið unnið að endurbótum á uppsetningu bókhalds á árinu með innleiðingu á PowerBi í samvinnu við Deloitte.

Ársreikningur 2025, undirritaður sjá hér

  • Hagnaður félagsins á árinu 2025 nam 546 millj. kr. samanborið við 530 millj. kr. við árið 2024

  • Matsbreyting fasteigna félagsins nam 315 millj. kr. samanborið við 326 millj. kr. á árinu 2024

  • Heildareignir félagsins námu 16.083 millj. kr. í árslok 2025 en þar af voru fjárfestingareignir 13.244 millj. kr. og handbært fé og markaðsverðbréf námu 1.023 millj. kr.

  • Vaxtaberandi skuldir námu 7.832 millj. kr. í árslok og eru 7.432 millj. kr. verðtryggðar skuldir.

  • Eigið fé félagsins nam 7.023 millj. kr. í árslok samanborið við 6.477 millj. kr. í árslok 2024. Eiginfjárhlutfall félagsins er 43,7% í árslok 2025

  • Tveir hluthafar eru í félaginu en það eru Háskóli Íslands með 94,6% hlut og Reykjavíkurborg með 5,4% hlut. Í samþykktum félagsins segir að eigendum sé óheimilt að taka hagnað eða arð út úr félaginu.

Djúptæknisetur

Djúptæknisetur er lykilverkefni í áframhaldandi uppbyggingu Vísindagarða Háskóla Íslands. Markmiðið er að skapa sameiginlegan rannsóknarinnvið þar sem háskólar, rannsóknastofnanir og fyrirtæki vinna saman að þróun og hagnýtingu þekkingar.

Setrið, sem rís við Kristínargötu 3 í Vatnsmýri, mun bjóða upp á hágæða rannsóknaraðstöðu með opnu aðgengi, þar sem aðilar geta deilt búnaði og rýmum gegn gjaldi. Með því eykst nýting dýrra innviða, samstarf verður skilvirkara og aðgengi að alþjóðlegum styrkjum og samstarfsverkefnum styrkist.

Samhliða rannsóknaraðstöðu verður í húsinu sveigjanleg vinnuaðstaða og sameiginleg rými sem styðja við þróun fyrirtækja og daglegt samstarf. Markmiðið er að byggja upp samþætt vistkerfi þar sem rannsóknir, frumkvöðlastarf og atvinnulíf mætast á einum stað.

Sóknarfæri í djúptækni

Djúptæknisetur mun hýsa vísindafólk og frumkvöðla á lykilsviðum þar sem Ísland hefur samkeppnisforskot:

  • Heilbrigðisvísindi og líftækni

  • Lyfjaþróun

  • Landbúnaður og matvæli

  • Jarðvísindi

  • Orka og auðlindir

  • Ofurtölvur og gervigreind

  • Máltækni

Setrið mun styðja við aukna verðmætasköpun, útflutning og sjálfbæra þróun.

Sameiginlegir innviðir
Rannsóknaraðstaða og búnaður verða rekin í sameiginlegu rekstrarfélagi með opnu aðgengi, sem tryggir betri nýtingu og faglegan rekstur.

Viljayfirlýsing Alvotech, Háskóla Íslands og Vísindagarða vegna djúptækniseturs

Alvotech, Háskóli Íslands og Vísindagarðar HÍ undirrituðu viljayfirlýsingu um samstarf í djúptæknisetri, rannsóknarsetri sem rís við Kristínargötu/Bjargargötu 3 í Vatnsmýri. Jafnframt gerðu aðilarnir samning um leigu á húsnæði í Frumunni, Klettagörðum 6, fyrir starfsemi Háskóla Íslands og sprotafyrirtækja á sviði iðnaðarlíftækni.

Nýtt skref í uppbyggingu rannsóknarinnviða
Viljayfirlýsingin snýr að því að skapa sameiginlega aðstöðu fyrir sprotafyrirtæki í Klettagörðum til bráðabirgða, en stefnt er að því að starfsemin flytjist síðar í djúptæknisetrið í Vatnsmýri. Alvotech og Vísindagarðar HÍ eru jafnframt í virku samtali um að nýta sér rannsóknarinnviði í fyrirhuguðu djúptæknisetri.

Markmið

  • Skapa öflugan samstarfsvettvang háskóla, stofnana og fyrirtækja

  • Auka tækifæri til þverfaglegs samstarfs

  • Tryggja samnýtingu sérfræðiþekkingar og rannsóknaraðstöðu

  • Styrkja umhverfi fyrir vísindadrifna nýsköpun

Framvinda

Undirbúningur hófst árið 2021 í kjölfar stefnumótunar Vísindagarða og hefur verkefnið þróast markvisst síðan.

  • Ákvörðun um uppbyggingu tekin árið 2023

  • Byggingarnefnd skipuð og útboð framkvæmt árið 2024

  • Hönnun og útfærsla hófst árið 2025

Gert er ráð fyrir að djúptæknisetrið opni um mitt ár 2029.

Innviðaverkefni

Kortlagning rannsóknarinnviða á Íslandi
Vísindagarðar hafa leitt verkefni um kortlagningu og samnýtingu rannsóknarinnviða á Íslandi í samstarfi við háskóla, stofnanir og fyrirtæki. Markmiðið er að bæta nýtingu aðstöðu og efla samstarf þvert á kerfið.

Innleiðing á kerfinu Calira er lykilþáttur í verkefninu og gerir kleift að halda utan um aðgang, notkun og rekstur rannsóknarinnviða.

Staða og næstu skref
Árið 2025 skilaði verkefnið aukinni yfirsýn yfir innviði og fyrstu skrefum í sameiginlegri notkun þeirra. Nokkrir lykilaðilar hafa þegar innleitt kerfið og fleiri eru í innleiðingarferli.

Þrátt fyrir að verkefninu hafi formlega lokið í árslok 2025, halda Vísindagarðar áfram að leiða vinnuna í samstarfi við stjórnvöld og hagaðila. Áhersla er á áframhaldandi innleiðingu og undirbúning að sameiginlegum rekstri rannsóknarinnviða.

Fruman
Klettagarðar 6

Frumunni er miðstöð líftækni á Íslandi, en hún er stofnuð til að styðja við nýsköpun, rannsóknir, þróun og samvinnu. Upphaflega hýsti rýmið í Klettagörðum 6 rannsóknar- og þróunardeild Alvotech, en hefur nú verið breytt í nútímalega aðstöðu fyrir framtíðarþróun líftækni á Íslandi.

Í Frumunni koma saman vísindamenn, nemar, sprotafyrirtæki og frumkvöðlar í líftækniiðnaði, í þeim tilgangi að stórefla vistkerfi líftæknigeirans, vísindarannsóknir og menntun á sviði líftækni og er þar m.a. til húsa námsbraut Háskóla Íslands í iðnaðarlíftækni sem hóf þar kennslu á vorönn 2025.

Vísindagarðar styðja við áframhaldandi uppbyggingu líftækniiðnaðarins á Íslandi meðal annars með því að veita árlegan styrk sem nemur leiguverði undir aðstöðu námsbrautarinnar í iðnaðarlíftækni í Klettagörðum. Meistaranámi í iðnaðarlíftækni var komið á fót af samstarfsnefnd Háskóla Íslands og Alvotech, það er þverfaglegt og skipulagt sameiginlega af Heilbrigðisvísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði og nýtur stuðnings Vísindagarða HÍ.

Þá eru Vísindagarðar í virku samtali við Alvotech um að aðstaðan þróist og vaxi á næstu árum og flytjist að hluta í fyrirhugað djúptæknisetur í Vatnsmýrinni, sem Vísindagarðar undirbúa að rísi þar á næstu árum. Þannig er starfsemi og fyrirkomulag í Frumunni eins konar frumgerð eða „pilot” fyrir reksturinn í djúptæknisetri.

Svæði Vísindagarða

Gróska (Kristínargata 1)
Rétt fyrir áramót 2024- 2025 barst tilkynning frá Grósku ehf um að hafnar væru viðræður félagsins við Heima ehf fasteignafélag um kaup Heima á Gróskuhúsinu að Bjargargötu 1.

Vísindagarðar afsöluðu sér forkaups- og forleigurétti vegna þessara eignaskipta og gengu eignaskiptin síðan í gegn í maí.

Farsælt samstarf hefur komist á við Heima, nýja eigendur Grósku.

Alvotech (Sæmundargata 15 - 19)
Hjá Alvotech á Vísindagörðum vinna um 1000 manns frá 70 mismunandi þjóðlöndum. Fyrirtækið er í miklum vexti og er nú í hópi leiðandi fyrirtækja á heimsvísu í þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæðu.

Tekist hefur farsælt samstarf milli Háskóla Íslands, Alvotech, og Vísindagarða og í mars undirrituðu Alvotech, Háskóli Íslands og Vísindagarðar HÍ undir viljayfirlýsingu um samstarf í fyrirhuguðu djúptæknisetri, rannsóknarsetri sem mun rísa við við Kristínargötu 3 í Vatnsmýri.

Íslensk erfðagreining (Sturlugata 8)
Hús íslenskrar erfðagreiningar er í eigu Vísindagarða og hefur verið frá 2014. Á grundvelli ákvæða í leigusamningi um húsið um forkaupsrétt gengu Vísindagarðar inn í kaup á húsinu.

Félagsstofnun stúdenta (Sæmundargata 21)
Á Sæmundargötu rekur Félagsstofnun stúdenta íbúðir fyrir stúdenta. Þar eru jafnframt 75 stæði í eigu Vísindagarða í bílakjallara hússins. Sú ákvörðun að úthluta Félagsstofnun Stúdenta einni af lóðum Vísindagarða undir stúdentaíbúðir hefur reynst mjög farsæl, enda stúdentar mikilvægur þáttur af þeirri samfélagsuppbyggingu sem á sér stað á svæðinu.

Eggertsgata
Samningur við Reykjavíkurborg um bráðabirgðaafnot af lóðinni undir leikskóla er í gildi. Á lóðinni standa einnig hús fyrrverandi hverfastöðvar Reykjavíkurborgar og eru húsin eigu borgarinnar. Auk starfsemi leikskólans sem er í hluta af húsunum er Háskóli íslands með aðstöðu þar fyrir jarðfræðirannsóknir.

Bílastæðahús í Vatnsmýrinni ehf
Haldið er utan um rekstur bílastæðanna á lóðunum Ingunnargötu 1-5 og í bílakjallara að Sæmundargötu 21 í sérstöku félagi Bílastæðahúsi í Vatnsmýrinni ehf. Fyrirtækið Gulur bíll ehf sér um að innheimta bílastæðagjöldin og hefur umsjón með bæði kjallaranum og útistæðunum.

Fasteignafélagið Bjargargata 3
Í Fasteignafélaginu Bjargargata 3 ehf er haldið utan um framkvæmdir vegna fyrirhugaðs djúptækniseturs sem mun rísa á lóð Vísindagarða.

Randbyggð
Í samvinnu við Íslenskar fasteignir (ÍF) var unnið að því að koma uppbyggingu lóðanna af stað. Uppbygging Randbyggðar hefur tafist m.a. vegna óvissu í skipulagsmálum. Í vinnslu er erindi hjá skipulagsyfirvöldum Reykjavíkurborgar um skipulagsbreytingar á lóðunum.

Mýrin

Mýrin - samfélag frumkvöðla er nýsköpunarsetur Vísindagarða, staðsett á fyrstu hæð í Grósku. Frá opnun 2021 hafa Vísindagarðar rekið Mýrina með það að markmiði að vera með hágæða vinnuaðstöðu og samkomustað fyrir sprota og frumkvöðla á byrjunarstigi. Lykillinn í þessari stefnu eru aðilar stuðningsnets Mýrarinnar, sem í byrjun árs 2025 voru Klak, Auðna, Miðstöð Hönnunar og Arkitektúrs, Georg og Íslenski ferðaklasinn, sem hafa það hlutverk að laða að og styðja undir leigjendur Mýrarinnar í formi ráðgjafar og tengslanets. Nánd við Háskóla Íslands, aðra sprota og leiðandi fyrirtæki í þekkingariðnaðinum skapar blómlegt mannlíf og liðkar fyrir tengslamyndun.

Árið 2025 bættist Almannarómur við sem nýr stuðningsaðili Mýrarinnar, en hlutverk Almannaróms verður að styðja við sprota og frumkvöðla sem vinna í lausnum á sviði gervigreindar, máltækni og íslenskrar tungu í tæknilausnum.

Við lok árs 2025 voru meira en 150 skráðir meðlimir hjá rúmlega 40 fyrirtækjum í Mýrinni.

Mýrin býður upp á öflugt stuðningsnet fyrir fjölbreytt nýsköpunarverkefni, meðal annars í nánu samstarfi við Háskóla Íslands. Í gegnum Sprotamýri fá nemendur og starfsfólk HÍ vinnuaðstöðu og sérhæfða ráðgjöf til að þróa hugmyndir sínar, á meðan háskólahraðallinn Snjallræði (unninn í samstarfi við MIT) styður við samfélagssprota sem leita lausna á áskorunum samtímans.

Mýrin gegnir mikilvægu hlutverki í að brúa bilið á milli akademíu og atvinnulífs með virkum tengslum við ólíkar deildir háskólans. Með því að leiða saman sérfræðinga, nemendur og frumkvöðla á einn stað, skapar Mýrin frjóan jarðveg fyrir hagnýtingu rannsókna og framgang nýrra lausna sem bæta samfélagið.

Mýrin er líflegur vettvangur fyrir fjölbreytta viðburði, allt frá ráðstefnum og málstofum yfir í hakkaþon og viðskiptahraðla. Húsnæðið hýsir reglulega starfsemi á vegum Háskóla Íslands og Tengslatorgs HÍ, auk fjölmargra viðburða á vegum íbúa og samstarfsaðila. Þar má nefna málstofur og sýningar á vegum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, Gulleggið og aðra viðskiptahraðla á vegum KLAK, ásamt sérhæfðum námskeiðum (masterclasses) á vegum Auðnu TTO svo fátt eitt sé nefnt. Þá hafa viðburðir á borð við Iceland Innovation Week einnig fest sig í sessi og nýir viðburðir á borð við Gervigreindarkeppni Íslands átt sér stað í Mýrinni á liðnu ári. Mýrin er að auki reglulegur vettvangur fyrir viðburði opinberra stofnana, fyrirtækja og frumkvöðla úr ýmsum geirum. Fjöldi sprotafyrirtækja sem hafa staðsett sig í Mýrinni t.d. LóaLóa, Prescriby, Pikkoló hafa hlotið sprotastyrk tækniþróunarsjóðs, og enn fleiri hafa hlotið fræ styrk eða sambærilegt. Annar fjöldi fyrirtækja hafa útskrifast úr Mýrinni, og má þar sérstaklega nefna Evolv, Plaio, og Tulipop.

Jafnframt er lögð rík áhersla á að nýta aðstöðuna til að efla tengsl á milli háskólastofnana, brúa bilið á milli nýsköpunarsamfélaga og styrkja samstarf við samvinnurými og nýsköpunarmiðstöðvar um land allt.

Mýrin í tölum

Kynningarmál

Árið 2025 einkenndist af auknum sýnileika og markvissari miðlun á starfsemi Vísindagarða HÍ. Umfjöllun í fjölmiðlum jókst og þátttaka á stafrænum miðlum styrktist, sem endurspeglar vaxandi áhuga á starfseminni og hlutverki Vísindagarða í nýsköpunarumhverfinu.

Helstu verkefni ársins fengu umfjöllun og styrktu stöðu Vísindagarða sem tengipunkts milli háskóla og atvinnulífs.

Samhliða ytri miðlun var lögð aukin áhersla á sýnileika innan svæðisins sjálfs, þar sem upplýsingagjöf í Grósku og Mýrinni styður við virkt samfélag og eykur tengsl milli aðila.

Ofurtölvan LUMI

Árið 2025 hófst verkefni innan Háskóla Íslands sem þróaðist í samstarf HÍ, Vísindagarða, Háskólans í Reykjavík, Veðurstofu Íslands og Árnastofnunar, undir verkefnastýringu Almannaróms.

Verkefnið tengist EuroHPC innviðaverkefni Evrópusambandsins, sem veitir rannsakendum og sprotum aðgang að ofurtölvum án beins kostnaðar. Markmiðið er að auðvelda nýtingu öflugs reikniafls án umfangsmikilla fjárfestinga.

Samstarfsaðilar fengu árið 2025 aðgang að finnsku ofurtölvunni LUMI, einni af öflugustu tölvum Evrópu. Aðgangurinn gildir í þrjú ár og nýtist til rannsókna, þróunar og nýsköpunar á fjölbreyttum sviðum, meðal annars í gervigreind, veðurfræði og máltækni.

Hlutverk Vísindagarða er að tengja sprota og frumkvöðla við innviðina og styðja við nýtingu þeirra, meðal annars með aðstöðu og aðgangi að þróunarumhverfi.

Styrkir og samstarf

Vísindagarðar HÍ eru til almannaheilla og greiða því ekki út arð heldur endurfjárfesta í fjölbreyttri starfsemi samkvæmt stefnu og samþykktum félagsins. Þar er framtíðarsýn og leiðarljós Vísindagarða, að hugvit geti breytt heiminum og sé framtíðarauðlind Íslands. Því er lögð rík áhersla á að tryggja að Vísindagarðar bjóði upp á framúrskrandi aðstöðu, stuðli að samvinnu og skapi gróskumikið samfélag fyrir vísindi, nýsköpun og skapandi greinar.

Verkefni styrkt af Vísindagörðum

  • Doktorsstyrkir

  • Tölvunarfræðideild HÍ

  • Iðnarðarlíftækni HÍ - Klettagarðar 6

  • Vísindaheimar

  • GAGNÍS

  • Styrkir til stuðningsnets Mýrarinnar

    • Almannarómur

    • Auðna

    • Ferðaklasinn

    • GEORG

    • Klak

    • MHA

  • Nýsköpunarvikan og Hönnunarmars

  • Snjallræði

  • Tengslatorg HÍ

  • Glóð (AIFA-ICE)

  • Reykjavík Science City

Viðburðir

MIT heimsókn
Í maí 2025 heimsóttu stjórn og starfsfólk Vísindagarða Massachusetts Institute of Technology (MIT) í Boston í tengslum við stefnumótunarvinnu félagsins.

Heimsóknin veitti innsýn í alþjóðlegt nýsköpunarumhverfi, einkum á sviði djúptækni, rannsóknarinnviða og þverfaglegrar nýsköpunar. Sérstök áhersla var lögð á hvernig aðstaða, nálægð ólíkra aðila og virkt samfélag geta hraðað þekkingarmiðlun, samstarfi og þróun nýrra lausna.

Heimsóknin styrkti alþjóðlegt tengslanet Vísindagarða og staðfesti að áherslur félagsins á djúptækni, rannsóknarinnviði og samfélagslega uppbyggingu eru í takt við það sem fremst gerist á alþjóðavísu.

Stefnumót við gervigreind
Stefnumót við gervigreind var hliðarviðburður á haustráðstefnu Advania 2025, haldinn í samstarfi við Advania og Nvidia. Viðburðurinn var einkum ætlaður ungu háskólafólki, sprotum og frumkvöðlum á byrjunarstigi og sóttu hann yfir 100 manns, meðal annars nemendur frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.

Á viðburðinum var fjallað um nýjustu verkfæri og lausnir á sviði gervigreindar, stuðningsumhverfi fyrir sprotafyrirtæki og hagnýtingu tækninnar í rannsóknum og atvinnulífi. Einnig var fjallað um samfélagsleg álitaefni tengd gervigreind og sýnd dæmi um þróun nýrra lausna.

Viðburðurinn var jafnframt nýttur til að kynna starfsemi Vísindagarða og þar voru í fyrsta sinn sýndar opinberlega teikningar af fyrirhuguðu djúptæknisetri.

IASP heimsráðstefna
Heimsráðstefna alþjóðasamtaka vísindagarða, IASP, var haldin í Beijing í september 2025. Vísindagarðar Háskóla Íslands hafa verið fullgildir meðlimir samtakanna frá árinu 2011.

Þema ráðstefnunnar var þróun vísindagarða frá hefðbundnu fasteigna- og aðstöðumódeli yfir í virkari nýsköpunarsvæði þar sem þjónusta, samfélag og stuðningur við fyrirtæki gegna stærra hlutverki. Sú þróun endurspeglar vel þá leið sem Vísindagarðar hafa farið með uppbyggingu Mýrarinnar í Grósku.

Á ráðstefnunni kom jafnframt skýrt fram hversu stóran sess gervigreind og líftækni gegna nú í framtíðarþróun vísindagarða um allan heim. Þátttaka Vísindagarða nýttist bæði til tengslamyndunar og til að styrkja alþjóðlega sýn félagsins á þróun djúptækniseturs og framtíðarhlutverk Vatnsmýrarinnar sem samkeppnishæfs nýsköpunarsvæðis.

Alþjóðlegt samstarf

Vísindagarðar HÍ vinna með sérvöldum vísindagörðum sem eru í samræmi við stefnu og áherslusvið Vísindagarða HÍ til að styrkja stöðu á aþjóðavettvangi og afla þekkingar og reynslu.

  • DTU Science Park

  • Sophia Antipolis

  • International Association of Science Parks

  • EuroHPC Joint Undertaking

  • MIT DesignX