Vísindagarðar leiða saman háskóla, rannsóknarstofnanir og fyrirtæki á einum og sama blettinum í Vatnsmýri. Með því að tengja ólíkar starfsgreinar og skapa bestu mögulegu skilyrði til samvinnu verður til nýsköpunarsamfélag þar sem grunnrannsóknir og vísindi eru undirstaðan. Þannig bætum við samkeppnishæfni Íslands frammi fyrir áskorunum framtíðarinnar og sköpum verðmæti fyrir land og þjóð.

Nánar um Vísindagarða

Saga Vísindagarða nær til ársins 1961 þegar Reykjavíkurborg gaf Háskóla Íslands landssvæði í Vatnsmýrinni með því skilyrði að þar yrðu reistir vísindagarðar. Þá var svæðið ekki nema mýri en árið 1999 komst uppbyggingin á skrið þegar Íslensk erfðagreining hóf að byggja sínar höfuðstöðvar sem opnuðu 2003. Árið 2004 var stofnað félag um reksturinn á svæðinu. Félagið er að mestu leyti í eigu HÍ (94,5%) en Reykjavíkurborg á einnig 5,5% hlut í því.

Vísindagarðar ehf. sjá um að velja fyrirtæki og stofnanir inn á svæðið og reka það sem heild. Lóðir eru leigðar til 50 ára með möguleika á framlengingu. Við val á leigutökum er horft til þess hvað þeir geti lagt til samfélagsins á svæðinu, samhljóms við stefnu félagsins, alþjóðlegra tenginga, fjárhagslegs bolmagns og vægis nýsköpunar og þróunar innan fyrirtækisins.

Á Vísindagörðum eru yfir 500 stúdentaíbúðir, fjöldi sprotafyrirtækja auk stærri aðila á sviði upplýsingatækni og líftækni. Skapandi greinar eiga einnig sína fulltrúa á Vísindagörðum, til dæmis með Miðstöð hönnunar- og arkitektúrs og CCP. Til framtíðar er ekki síst horft til þess að fá inn fyrirtæki í orku- og sjálfbærnigeirunum. Þá er lögð áhersla á sjálfbærni í hönnun svæðisins, til dæmis í samgönguáætlun, vali á byggingarefnum og með blágrænum ofanvatnslausnum. 

Starfsfólk

  • Þórey Einarsdóttir

    Framkvæmda­stjóri

  • Gísli Karl Gíslason

    Verkefnastjóri

  • Hrólfur Jónsson

    Formaður byggingarnefndar DTK

Stjórn 2026

  • Sigurður Magnús Garðarsson

    Formaður stjórnar

    Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ.

  • Linda Jónsdóttir

    Stjórnarmaður

    Fjármálastjóri Alvotech.

  • Kristinn Aspelund

    Stjórnarmaður

    Framkvæmdastjóri Ankeri ehf.

  • Arna Hauksdóttir

    Stjórnarmaður

    Prófessor og forstöðumaður í lýðheilsuvísindum.

  • Þorsteinn Gunnarsson

    Stjórnarmaður

    Borgarritari - Skrifstofu borgarstjóra og borgarritara

Til vara

  • Stefán Þór Helgason

    Varamaður í stjórn

    Þjónustu- og viðskiptaþróunarstjóri hjá
    Fjársýslu ríkisins

  • Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir

    Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir

    Varamaður í stjórn

    Forseti menntavísindasviðs HÍ.

Ársskýrsla 2025

Árið 2025 var ár framfara fyrir Vísindagarða Háskóla Íslands. Starfsemi félagsins byggir áfram á stefnu stjórnar frá árinu 2021.

Ársreikningur síðasta árs

Ársskýrslur síðustu ára

Fundargerðir aðalfundar

Samþykktir Vísindagarða

Spurt og svarað