
Stefna Vísindagarða
Stefna Vísindagarða var þróuð í nánu samstarfi við MIT DesignX hjá Massachusetts Institute of Technology og EnnEmm auglýsingastofu. MIT DesignX ferlið felst í að móta nýja stefnu með því að byrja með vítt mengi af upplýsingum sem unnið er með kerfisbundið með vinnustofum og djúpviðtölum við hagaðila þar til afmörkuð stefna hefur verið mótuð.
Dr. Svafa Grönfeldt, prófessor við MIT, leiddi stefnumótunina.
Framtíðarsýn og hlutverk
Áherslusvið
Lífvísindi
Fjalla um lífið í allri sinni mynd, allt frá frumum og sameindum yfir í samfélög lífvera og vistkerfi.
HVERS VEGNA
Lífvísindi og líftækni eru meðal mikilvægustu vaxtarsvæða þekkingarhagkerfis nútímans og áhersla á þau eru bæði skynsamleg og brýn vegna amlegðaráhrifa, rannsóknarinnviða og samstarf við atvinnulífið.
VERÐMÆTASKÖPUN
Verðmætasköpun byggir á öflugri þekkingu, nýsköpun og samstarfi fræðasamfélags og atvinnulífs. Mikil tækifæri til vaxtar á sviði erfðatækni, lyfjaþróunar og matvælalíftækni.
Tækni
Hönnun, þróun og nýting tæknilausna með stafrænni tækni, hugbúnaði, gögnum og verkfræðiaðferðum.
HVERS VEGNA
Samlegðaráhrif, tengslanet, aðstaða og skýr framtíðarsýn um nýsköpun og framþróun á Íslandi stuðlar að hraðari þróun, aukinni verðmætasköpun og betri nýtingu þekkingar og mannafla.
VERÐMÆTASKÖPUN
Veruleg verðmæti á Íslandi með beinum og afleiddum störfum og stuðningi við aðrar atvinnugreinar. Mikil tækifæri til vaxtar vegna notkunar, innviða og áherslu á stafræna þróun.
Skapandi greinar
Skapandi greinar eru fjölbreyttur hópur fræða- og atvinnugreina sem nýta hugvit, frumleika og þverfaglegt samstarf til að skapa verðmæti með þróun hugverka.
HVERS VEGNA
Skapandi greinar eru vaxandi atvinnuvegur á Íslandi og hafa áhrif á ímynd, stöðu og möguleika Íslands á alþjóðavettvangi, bæði menningarlega og sem þáttur í útflutningstekjum, alþjóðlegri sýn og samvinnu.
VERÐMÆTASKÖPUN
Ein af undirstöðuatvinnugreinum Íslands með mikið efnahagslegt og samfélagslegt vægi. Miklir vaxtarmöguleikar og bæði bein verðmætasköpun og afleidd í gegnum mikilvægt samstarf við tæknigreinar.