Aðalfundur Vísindagarða Háskóla Íslands þann 15.apríl

Aðalfundur Vísindagarða Háskóla Íslands fer fram mánudaginn 15. apríl kl. 13:30 - 15:00 í stóra salnum í Grósku, Bjargargötu 1, 102 Reykjavík.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

Ávarp stjórnarformanns

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

  2. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar

  3. Stjórn félagsins skýrir frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári

  4. Ársreikningur ásamt athugasemdum endurskoðanda lagður fram til samþykktar

  5. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda eða skoðunarmanna

  6. Ákvörðun um hvernig fara skal með hagnað eða tap og um arð og framlög í varasjóð

  7. Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á komandi starfsári

  8. Önnur mál löglega upp borin

Kynning á doktorsverkefni

Léttar veitingar og spjall í Mýrinni, nýsköpunarsetri Vísindagarða Háskóla Íslands að loknum fundi.

Hlökkum til að sjá sem flesta!

Vinsamlegast skráið ykkur hér: https://www.visindagardar.is

Forrige
Forrige

Viðburðaröðin Umferðin & okkar daglega líf heldur áfram

Næste
Næste

Umferðin & okkar daglega líf. Vel sóttur viðburður Vísindagarða