Vísindagarðar taka þátt í Atvinnudögum HÍ 2022

Atvinnudagar HÍ 2022 - Uppskrift að starfsframanum - fara fram með rafrænum hætti dagana 31. janúar til 4. febrúar nk. Náms- og starfsráðgjöf HÍ (NSHÍ), Fjármála- og atvinnulífsnefnd SHÍ ásamt Vísindagörðum standa að dagskránni sem er ætluð nemendum Háskóla Íslands.

Í upphafi árs fara fjölmargir nemendur að huga að bæði sumar- og framtíðarstörfum og er Atvinnudögum ætlað að koma til móts við þann hóp bæði með spennandi fyrirlestrum og fræðslu.

Dagskránni verða gerð góð skil á næstu dögum, bæði hér á vefnum og á hi.is

Forrige
Forrige

Ráðherra heimsækir Vísindagarða

Næste
Næste

Gulleggið í Grósku