Sigurður Magnús Garðarsson hlýtur heiðursverðlaun á Nýsköpunardegi hins opinbera

Nýsköpunardagur hins opinbera 2026 (NHO26) fór fram 6. maí síðastliðinn á vegum Fjársýslunnar en tæplega hundrað manns tóku þátt í deginum. Viðburðurinn hefur skapað sér ríkan sess sem mikilvægur vettvangur umræðu um framþróun í opinberri starfsemi.

Það er okkur hjá Vísindagörðum sérstakt fagnaðarefni að segja frá því að Sigurður Magnús Garðarsson, stjórnarformaður Vísindagarða, hlaut heiðursverðlaun fyrir áratugalangt og ómetanlegt framlag sitT til opinberrar nýsköpunar.

Sigurður Magnús Garðarsson, stjórnarformaður Vísindagarða, tekur við heiðursverðlaununum á Nýsköpunardegi hins opinbera.

Leiðtogahlutverk í sjálfbærni og alþjóðlegu samstarfi

Sigurður Magnús hlaut heiðursverðlaunin fyrir framlag sitt til opinberrar nýsköpunar á sviði innviða, orkumála og umhverfisverndar. Við veitingu verðlaunanna var sérstaklega horft til rannsókna hans og leiðtogahlutverks í uppbyggingu alþjóðlegs samstarfs á sviði jarðvarmanýtingar og sjálfbærra lausna.

Þá var jafnframt dregin fram rík forysta hans í hagnýtingu rannsókna og öflugur stuðningur við nýsköpunarumhverfið í heild sinni, m.a. í hlutverki hans sem stjórnarformaður Vísindagarða.

Öflugt samstarf og framtíðarlausnir í nýsköpun

Þemað á Nýsköpunardeginum í ár var heildstæðar umbætur í opinberum rekstri, með sérstakri áherslu á hvernig nýsköpun og markviss innkaup geta stuðlað að betri þjónustu við almenning og atvinnulíf. Þessi hugsun tónar vel við það starf sem fram fer á vettvangi Vísindagarða, þar sem áhersla er lögð á að brúa bilið á milli rannsókna, háskólasamfélagsins og atvinnulífsins. Sigurður Magnús lagði einmitt áherslu á kraftinn í samstarfinu þegar hann veitti verðlaununum viðtöku:

„Nýsköpun á breiðu sviði hefur verið stór þáttur í mínum störfum. Ég hef notið þess að vinna með einstaklingum í fjölmörgum geirum nýsköpunarumhverfisins sem brenna fyrir því að láta gott af sér leiða. Þetta hefur verið gefandi og ég hlakka til að halda áfram að leggja mitt af mörkum,“ segir Sigurður Magnús.

Vísindagarðar óska Sigurði Magnúsi innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu. Starf hans og framsýni er nýsköpunarsamfélaginu öllu mikill innblástur og mun áframhaldandi samstarf við uppbyggingu framtíðarlausna í nýsköpun byggja á þeim trausta grunni.

Verðlaunahafar 2026.

Næste
Næste

Hannað í Grósku: opinn viðburður á HönnunarMars í samstarfi við Vísindagarða