Vísindagarðar taka þátt í vali á bestu viðskiptaáætluninni

Það býr mikil hugmyndaauðgi í nemendum Háskóla Íslands og það fékkst staðfest enn einu sinni þegar tvær viðskiptaáætlanir nemenda í samnefndu námskeiði við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands hlutu veglegar viðurkenningar á sérstakri verðlaunaathöfn í Grósku – hugmyndahúsi. Áætlanirnar snúast um fyrstu íslensku mjólkurlausu vörulínuna úr höfrum og þróun sérmerktra líkkista fyrir gæludýr.

Námskeiðið Viðskiptaáætlanir var endurvakið nú á vormisseri eftir 15 ára hlé og er í umsjón Ástu Dísar Óladóttur, dósents í Viðskiptafræðideild. Á því var nemendahópnum skipt í 4-5 manna hópa og lögðu þeir mikið á sig við að vinna viðskiptaáætlun utan um hugmyndir sínar. Námskeiðið var í samvinnu við Vísindagarða Háskólans og Íslandsbanka sem veittu verðlaun fyrir tvær bestu hugmyndirnar. Alls urðu ellefu viðskiptaáætlanir til í námskeiðinu.

Fyrstu verðlaun að upphæð 200 þúsund krónur hlaut hugmyndin Alma jógúrt en að henni standa Aníta Þórunn Þráinsdóttir, nýútskrifaður matvælafræðingur,, og viðskiptafræðinemarnir Auður Ólafsdóttir, Gabriele Cibulskaite og Gunnhildur Ólöf Jóhannsdóttir. Alma stefnir að því að setja á markað fyrstu íslensku haframjólkurlínuna. Nýsköpun og sjálfbærni mun einkenna vörumerkið og verður fljótlega sett af stað mikil vöruþróun á mjólkurlausum hafravörum, s.s. ís, ostum, mjólk, rjóma og skyri. Þær eru hér ásamt Eddu Hermannsdóttur, samskiptastjóra Íslandsbanka.

Önnur verðlaun að upphæð 100 þúsund krónur hlaut hugmyndin Regnbogabrúin. Fyrirtækið býður upp sérmerktar líkkistur fyrir gæludýr en stofnendur höfðu tekið eftir því að vöru sem þessa vantaði á markaðinn. Markaðskönnun leiddi hið sama í ljós og því kom hópurinn auga á tækifæri á einfaldri, ódýrri en faglegri þjónustu fyrir gæludýraeigendur. Megintilgangur fyrirtækisins er að smíða, sérmerkja og selja líkkistur fyrir gæludýr, ketti og smáa hunda. Hér eru aðstandendur hugmyndarinnar, frá vinstri: Pétur Þór Sævarsson, María Arnarsdóttir, Silja Ástudóttir, Anna Sigfríð Garðarsdóttir Blomsterberg og Elín Sif Steinarsdóttir Röver sem fylgdist með athöfninni í gegnum síma

Í viðskiptafræði við Háskóla Íslands geta nemendur valið á milli sérsviðanna fjármála, markaðsmála, reikningshalds og stjórnunar. Þau nýtast öll þegar kemur að því að vinna stórt verkefni eins og viðskiptaáætlun. Að því hafa nemendur sem sækja í námskeiðið Viðskiptaáætlanir komist en það var endurvakið nú á vormisseri eftir 15 ára hlé og er í umsjón Ástu Dísar Óladóttur, dósents í Viðskiptafræðideild.

Í námskeiðinu var nemendahópnum skipt í 4-5 manna hópa og lögðu þeir mikið á sig við að vinna viðskiptaáætlun utan um hugmyndir sínar. Námskeiðið var í samvinnu við Vísindagarða Háskólans og Íslandsbanka sem veittu verðlaun fyrir tvær bestu hugmyndirnar. Alls urðu ellefu viðskiptaáætlanir til í námskeiðinu og það var í höndum sérstakrar dómnefndar að velja bestu viðskiptahugmyndina.

Verðlaunahafar ásamt fulltrúum Íslandsbanka og Vísindagarða, umsjónarmanni námskeiðsins og forseta Viðskiptafræðideildar. Frá vinstri: Edda Hermannsdóttir, Gylfi Magnússon, Elísabet Sveinsdóttir, Auður Ólafsdóttir, Aníta Þórunn Þráinsdóttir, Gunnhildur Ólöf Jóhannsdóttir, Gabriele Cibulskaite, Ásta Dís Óladóttir, Pétur Þór Sævarsson, María Arnarsdóttir, Silja Ástudóttir, Anna Sigfríð Garðarsdóttir Blomsterberg og Elín Sif Steinarsdóttir Röver sem fylgdist með athöfninni í gegnum síma.

Forrige
Forrige

Framtíð nýsköpunar

Næste
Næste

GEORG mætir á svæðið