Aðalfundur Vísindagarða 5. apríl 2022 kl. 13:30

Aðalfundur Vísindagarða Háskóla Íslands fer fram þriðjudaginn 5. apríl nk. í stóra salnum í Grósku, Bjargargötu 1, Reykjavík.

Samkvæmt samþykktum eru fimm menn í stjórn sem kjörnir eru á aðalfundi ár hvert. Fulltrúar Háskólans eru fjórir og einn frá Reykjavíkurborg.

Eftirtaldir aðilar hafa verið tilnefndir af Háskólaráði fyrir komandi starfsár:

  • Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, formaður

  • Margrét Helga Ögmundsdóttir, dósent við Læknadeild

  • Óli Jón Hertervig, skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg

  • Linda Jónsdóttir, fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs og mannauðs (e. Chi­ef Operat­ing Officer) hjá Marel hf

  • Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri Ankeri ehf. og stjórnarmaður í Samtökum sprotafyrirtækja

Fyrsti varamaður verður áfram Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda, og annar varamaður Stefán Þór Helgason, sviðsstjóri ný­sköp­un­ar og viðskiptaþró­un­ar hjá Rík­is­kaup­um.

Skipunartíminn er 2022-2023

Forrige
Forrige

Samtal við fulltrúa úr atvinnulífinu

Næste
Næste

Nýsköpunarstofa menntunar stofnuð