Aðalfundur Vísindagarða HÍ 2026

Loftmynd af svæði Vísindagarða

Aðalfundur Vísindagarða HÍ fer fram föstudaginn 27. mars nk. kl. 13:30 - 14:30 í stóra salnum í Grósku á svæði Vísindagarða, Kristínargötu 1 (áður Bjargargata), 102 Reykjavík.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Ávarp stjórnarformanns

  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara

  3. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram

  4. Stjórn félagsins skýrir frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári

  5. Ársreikningur ásamt athugasemdum endurskoðanda lagður fram til samþykktar

  6. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda eða skoðunarmanna

  7. Ákvörðun um hvernig fara skal með hagnað eða tap og um arð og framlög í varasjóð

  8. Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á komandi starfsári

  9. Önnur mál löglega upp borin

  10. Kynning á doktorsverkefni

Að aðalfundi loknum stendur fundargestum til boða að þiggja léttar veitingar í Mýrinni, nýsköpunarsetri Vísindagarða HÍ á 1. hæð í Grósku.

Vinsamlegast skráið ykkur hér: https://luma.com/kcvhsbex

Næste
Næste

Uppbygging samfélags á Vísindagörðum: Þórey Einarsdóttir í viðtali við IASP