Almannarómur leiðir nýja gervigreindarmiðstöð í Grósku með risastyrk frá Evrópu

EuroHPC Joint Undertaking veitir íslensku samstarfsverkefni, sem er undir forystu Almannaróms, ríflega 700 milljónir króna til að koma á fót miðstöð á Íslandi fyrir gervigreind og stórvirka tölvuvinnslu (HPC). Miðstöðin verður staðsett á skrifstofu Almannaróms í Mýrinni í Grósku.

Lilja Dögg Jónsdóttir er framkvæmdastjóri Almannaróms.

Þessi nýja miðstöð mun auðvelda íslenskum fyrirtækjum og stofnunum að prófa sig áfram í hagnýtingu gervigreindar með því að bjóða upp á greiðan og gjaldfrjálsan aðgang að öflugu reikniafli, gervigreindarhugbúnaði, gagnasöfnum og sérfræðiráðgjöf. Stuðningurinn er sérstaklega hugsaður fyrir lausnir á þróunarstigi, sem brúar bil þar til þær verða tilbúnar í almennan rekstur.

„Við ætlum að auðvelda fyrirtækjum og stofnunum að prófa sig áfram í hagnýtingu gervigreindar með greiðum og gjaldfrjálsum aðgangi að reikniafli og sérfræðiþekkingu,“ segir Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms. „Með samstarfi þessara ólíku stofnana bjóðum við breiðan þekkingargrunn og frábæra aðstöðu sem við erum sannfærð um að muni skapa tækifæri og verðmæti fyrir íslenskt samfélag.“

Samstarf og áherslur

Verkefnið er leitt af Almannarómi í öflugu samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Vísindagarða HÍ, Veðurstofu Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Sérstaklega verður horft til nýsköpunar og lausna á sviði heilbrigðismála, loftslags- og umhverfisrannsókna, endurnýjanlegrar orku, framleiðslu- og verkfræði og opinberrar stjórnsýslu.

Máltækni og íslensk tunga verða áhersluþættir sem ganga þvert á starfið og sýna þannig fram á mikilvægi þess að íslenska samfélagið sé í fararbroddi gervigreindarþróunar.

„Þessi tíðindi marka tímamót og allir sem lagt hafa hönd á plóg eiga mikið hrós skilið. Enn og aftur sjáum við kraftinn í íslenska vísinda- og nýsköpunarsamfélaginu, sem skilar sér í þessum risastyrk. Hér stígum við stórt skref inn í framtíð þar sem Íslendingar verða fullgildir þátttakendur í gervigreindarbyltingunni og geta gripið tækifærin sem í henni felast,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Verkefnið nýtur stuðnings menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og styður beint við framkvæmd Aðgerðaáætlunar um gervigreind 2025-2027, sem menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið gaf út í sumar.

Íslenskir aðilar fá aðgang að evrópskum innviðum í gervigreind.

Tenging við Evrópu

Styrkurinn, sem er fjármagnaður af Horizon Europe-áætluninni, veitir íslenskum aðilum beinan aðgang að evrópskum gervigreindarverksmiðjum (AI Factories). Íslenska miðstöðin í Grósku verður tengd við LUMI AI Factory í Finnlandi, þar sem ein öflugasta ofurtölva Evrópu er staðsett.

Markmiðið er að veita íslenskum sprotum, litlum og meðalstórum fyrirtækjum og opinberum stofnunum beinan aðgang að nýjustu og bestu gervigreindarinnviðum og -þekkingu sem völ er á í Evrópu. Sérstök áhersla verður lögð á ábyrga og trausta gervigreind í samræmi við evrópsk lög og reglur.

Sjá nánar frétt á vef Háskóla Íslands: 14 milljarða samstarfsverkefni stóreflir gervigreindarinnviði Íslands

Alls þrettán verkefni

Heildarumfang verkefnisins er um 1,4 milljarðar íslenskra króna og sé styrkt að helmingi af EuroHPC JU en íslensku samstarfsaðilarnir leggi til hinn helminginn í formi vinnu, húsnæðis og verkefnafjármagns. Íslenska umsóknin hafi verið metin á meðal þeirra allra bestu sem bárust sjóðnum en alls hafi þrettán verkefni í Evrópu hlotið styrki til að koma á fót svæðisbundnum miðstöðvum sem tengjast stærri gervigreindarverksmiðjum á borð við LUMI.

LUMI hafi lengi verið ein öflugasta ofurtölva Evrópu en nýlega hafi umfang og umgjörð starfsemi í kringum hana verið stækkuð þegar hún kom af stað þjónustu sinni sem gervigreindarverksmiðja styrkt af EuroHPC JU.

Slíkum gervigreindarverksmiðjum sé verið að koma á laggirnar víða um Evrópu, sem hluta af víðtækri áætlun sambandsins í málefnum gervigreindar. Stofnunin Euro HPC JU hafi nú komið 19 gervigreindarverksmiðjum af stað á vegum áætlunarinnar.

Til viðbótar við gervigreindarverksmiðjurnar hafi stofnunin nú úthlutað styrkjum fyrir svokallaðar landsmiðstöðvar sem þjóni sem eins konar útibú eða tengingar gervigreindarverksmiðjanna við önnur svæði. Íslenska miðstöðin verði þannig landsmiðstöð Íslands með tengingu við LUMI AI Factory.

Forrige
Forrige

Aðgengi að ofurtölvu fyrir frumkvöðla í Mýrinni

Næste
Næste

Opið forval - samkeppni um gerð listaverks fyrir djúptæknisetur