Hakkaþon NATO ACT í Mýrinni 23. til 27. febrúar

Atlantshafsbandalagið hyggst halda Hakkaþon í Mýrinni, samfélagi frumkvöðla, í Grósku á Vísindagörðum, dagana 23. til 27. febrúar 2026, í samstarfi við utanríkisráðuneytið, Háskóla Íslands, Vísindagarða og Klak Icelandic Startups. Hakkaþonið, sem ber heitið TIDES Hackathon (NATO Digital Interoperability Challenge), er haldið ár hvert í mismunandi aðildaríkjum þar sem þátttakendur koma úr háskólasamfélaginu, atvinnulífinu og stjórnsýslu aðildarríkjanna. Undanfarin ár hafa fulltrúar frá Úkraínu einnig tekið virkan þátt í viðburðinum.

Það er umbreytingaherstjórn Atlantshafsbandalagsins (NATO ACT) í Norfolk, Virginíu í Bandaríkjunum sem hefur frumkvæði að Hakkaþoninu.

Markmið viðburðarins er að þróa tæknilausnir fyrir raunverulegar áskoranir Atlantshafsbandalagsins á sviði öryggis- og varnarmála. Hakkaþonið er hluti af nýsköpunarstarfi NATO ACT sem miðar að því að virkja fjölbreyttan hóp sérfræðinga til að þróa hagnýtar lausnir á skömmum tíma.

Að þessu sinni verða kynntar þrjár áskoranir sem þátttakendur geta valið úr, tengdar gervigreind, netöryggi og skráningu særðra á átakasvæðum.

Verðlaun verða veitt fyrir framsæknustu og áhrifamestu lausnirnar, auk þess sem sigurliðin fá tækifæri til að tengjast nýsköpunarsamfélagi Atlantshafsbandalagsins og þróa hugmyndir sínar áfram innan NATO-umhverfisins.

Nánari upplýsingar um viðburðinn og skráningu má finna á eftirfarandi HLEKK

Næste
Næste

Nýjar myndir af hönnun djúptækniseturs á Vísindagörðum