Opnunarviðburður Atvinnudaga HÍ fer fram í Mýrinni

Atvinnudagar eru árviss viðburður í febrúar í Háskóla Íslands og að þeim standa Nemendaráðgjöf HÍ, Tengslatorg HÍ, Fjármála- og atvinnulífsnefnd Stúdentaráðs Háskóla, Íslands, Miðstöð framhaldsnáms, Vísindagarðar HÍ og KLAK – Icelandic startups.

Opnunarviðburður fer fram í Mýrinni, samfélagi frumkvöðla, í húsi Grósku á Vísindagörðum mánudaginn 16. febrúar kl. 16-18.

Yfirskrift viðburðarins er Námsmenn og nýsköpun – brúum bilið og er hann tvískiptur. Fyrri hlutinn fer fram í Mýrinni en þar mun Silja Bára R. Ómarsdóttir opna Atvinnudaga, fulltrúar Vísindagarðar, KLAK- IcelandicStartups og Nýsköpunarnefndar SHÍ kynna tækifæri til nýsköpunar og tveir nemendur HÍ segja frá reynslu sinni af nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi. Seinni hluti viðburðarins fer fram í göngugötunni í Grósku þar sem sprotafyrirtæki kynna starfsemi sína fyrir nemendum en þar gefst tilvalið tækifæri til tengslamyndunar og mögulega atvinnuleitar.

Markmið daganna er að búa nemendur undir þátttöku í atvinnulífi, hvort sem þeir eru að huga að sumar- eða framtíðarstarfi, en þessa dagana eru eflaust mörg að horfa í kringum sig í leit að spennandi atvinnutækifærum.

Dagskrá Atvinnudaga er opin öllum nemendum Háskólans og hægt er að kynna sér nánari

dagskrá þeirra á vef Tengslatorgs Háskóla Íslands https://tengslatorg.hi.is/atvinnudagar-hi-

2026/

Næste
Næste

Nýsköpun & ný tengsl: kynningarfundir á landsbyggðinni