Hannað í Grósku: opinn viðburður á HönnunarMars í samstarfi við Vísindagarða
Hannað í Grósku er spennandi viðburður í Grósku hugmyndahúsi á Vísindagörðum sem varpar ljósi á það hvernig hönnun kemur við sögu í fjölbreyttri starfsemi fyrirtækja í húsinu.
Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Vísindagarða, Grósku / Heima og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.
Viðburðurinn fer fram föstudaginn 8. maí kl. 11:00–12:20 í stóra sal Grósku. Þar mun fjöldi skapandi fyrirtækja í húsinu kynna ólíkar greinar hönnunar — upplifun, stafrænar lausnir, mörkun og arkitektúr.
Fyrirtækin Fenris Creations (áður CCP Games), Almannarómur, Tulipop Studios, Gagarín, Pikkoló, Brandenburg, Íslandsstofa, PLAN Studio, ESJA Arkitektar, Teiknistofan Tröð og Vísindagarðar stíga á svið með stutt og skemmtileg erindi.
Að kynningum loknum verður boðið upp á veitingar í miðrýminu frá 12:20–13:30. Þar gefst tækifæri til að halda samtalinu áfram, tengjast fólkinu í húsinu og kynnast betur þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fer fram í Grósku.
Hannað í Grósku opnar húsið fyrir íbúum, nágrönnum, gestum HönnunarMars og almenningi.
Tengjumst í Grósku á HönnunarMars!