Glóð kveikir ný tækifæri í íslenskri gervigreind

Marín Jónsdóttir frá Almannarómi hefur yfirumsjón með Glóð sem er samstarfsverkefni margra öflugra aðila sem vilja efla hagnýta notkun gervigreindar á Íslandi.

Glóð er nýtt íslenskt stuðningsverkefni á sviði gervigreindar sem veitir frumkvöðlum, fyrirtækjum og stofnunum aðgang að reikniafli, hugbúnaði og sérfræðiráðgjöf til að þróa og prófa nýjar lausnir. Höfuðstöðvar verkefnisins eru í Mýrinni, samfélagi frumkvöðla, á Vísindagörðum. Að verkefninu standa Almannarómur, Árnastofnun, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Veðurstofa Íslands og Vísindagarðar.

Lægri þröskuldur, fleiri tækifæri

Markmið Glóðar er að hraða nýsköpun og efla hagnýta notkun gervigreindar á Íslandi og er sérstök áhersla lögð á verkefni á þróunarstigi.

Verkefnið snýst ekki bara um tækni heldur um að breyta þekkingu í raunveruleg verðmæti. Með Glóð er þröskuldurinn lækkaður og fleiri leiðir opnast fyrir íslensk fyrirtæki, rannsóknarhópa og opinbera aðila til að nýta gervigreind á hagnýtan hátt.

Þróunarferli sprota í Glóð verkefninu.

Næsta skref í vegferð Vísindagarða

Glóð fellur vel inn í vegferð Vísindagarða á sviði gervigreindar sem hefur mótast á undanförnum misserum. Í Mýrinni hefur verið byggt upp umhverfi þar sem frumkvöðlar, sérfræðingar og nemendur koma saman og vinna með nýjar tæknilausnir. Staður þar sem nýjar hugmyndir fá rými, afl og aðstöðu til að verða að veruleika.

Gervigreindarkeppni Íslands og viðburðurinn Stefnumót við gervigreind sem Vísindagarðar stóðu að í samstarfi við Advania og Nvidia í Grósku fyrr í vetur eru góð dæmi um hvernig Vísindagarðar hafa skapað vettvang fyrir samtal, tilraunir og ný tengsl á þessu sviði.

Liðið CyboTRIX hlaut fyrstu verðlaun í háskólalið Gervigreindarkeppni Íslands í Mýrinni. Liðið var skipað þeim Adetayo Adebimpe og Moses Osabutey. Mynd: mbl.is/Karítas

Innviðirnir skipta máli

Öflug nýsköpun þarf líka öfluga innviði. Nýlega var opnað fyrir aðgang frumkvöðla í Mýrinni að NVIDIA DGX Spark-ofurtölvu þegar Advania afhenti Vísindagörðum fyrsta eintakið hér á landi. Tölvan auðveldar þróun gervigreindarlausna og vinnu með viðkvæm gögn án þess að allt fari beint í kostnaðarsama skýjavinnslu.

Glóð er síðan næsta skref á þessari vegferð; skipulagður stuðningur, breiðara samstarf og bein tenging við evrópska innviði á sviði gervigreindar og stórvirkrar tölvuvinnslu.

Hægt er að kynna sér verkefnið nánar á vefsíðunni glod.ai og eru áhugasamir hvattir til að sækja um.

Koma Spark-ofurtölvunnar markaði mikilvægt skref í vegferð Vísindagarða í gervigreind.



Næste
Næste

Aðalfundur Vísindagarða HÍ: Þar sem þekking verður að verðmætum