Nýjar myndir af hönnun djúptækniseturs á Vísindagörðum

Hér má sjá nýjar myndir sem sýna vel útlit nýs djúptækniseturs, en hönnun hússins er unnin af PLAN studio, Úti og Inni, Studio B, SLA og COWI, fyrir Vísindagarða. Um verður að ræða útlit sem á að standast tímans tönn, þar sem lita- og efnisval vísar m.a. í mýrarrauðann sem einkennir svæði Vatnsmýrarinnar.

Djúptæknisetrið er hugsað sem samkomustaður akademíu og atvinnulífs, þar sem vísindi, frumkvöðlastarfsemi og leiðandi fyrirtæki á sínu sviði fá aðstöðu til að starfa hlið við hlið. Byggingin er hönnuð til að styðja við tengslamyndun og efla markvisst samstarf leigutaka til að tengja saman grunnrannsóknir og nýsköpun. Þannig skapast heildstæð umgjörð og kjöraðstæður fyrir næstu kynslóð djúptækniverkefna á Íslandi.

Þú getur kynnt þér nánar allt um djúptæknisetrið hér á heimasíðu verkefnisins.

Forrige
Forrige

Hakkaþon NATO ACT í Mýrinni 23. til 27. febrúar

Næste
Næste

Opnunarviðburður Atvinnudaga HÍ fer fram í Mýrinni