Opinber heimsókn Vísindagarða til MIT í Boston

Great Dome - MIT

Hluti stjórnar og starfshóps Vísindagarða: Frá vinstri: Þórey Einarsdóttir, Svafa Grönfeldt samstarfsaðili, Linda Jónsdóttir, Anna Sigríður Ólafsdóttir, Hrólfur Jónsson, Gísli Karl Gíslason, Íris Hrund Þórarinsdóttir, Sigurður Magnús Garðarsson, Stefán Þór Helgason, Kristinn Aspelund

Vísindagarðar heimsóttu MIT/Massachusetts Institute of Technology í Boston á dögunum í kjölfar stefnumótunar Vísindagarða sem unnin var í samvinnu við Svöfu Gronfeldt, deildarstjóra MITdesignX og ENNEMM auglýsingastofu. Ný stefna Vísindagarða byggir á þeirri framtíðarsýn að hugvit breyti heiminum og sé framtíðarauðlind Íslands. Hlutverk Vísindagarða sé því að byggja upp skapandi umhverfi fyrir nýjar lausnir, fyrirtæki og störf sem skila auknum virðisauka og lífsgæðum. Þá eru áherslusvið Vísindagarða lífvísindi, tækni og skapandi greinar en þau meginsvið byggja á helstu stólpum í núverandi starfsemi svæðisins sem og framtíðarhorfum. Í beinum tengslum við stefnumótunarvinnuna, heimsóttu Vísindagarðar fjölmargar deildir og lykilstofnanir MIT, og hittu forsvarsfólk á sviði hönnunar, reksturs, nýsköpunar, tækni og lífvísinda.

Boðið var m.a. í heimsókn í höfuðstöðvar MITdesignX deildarinnar þar sem Svafa og Gilad Rosenzweig, framkvæmdastjóri kynntu nýsköpunarstefnu og samfélagsinnviði MIT. Þá kynnti José Ramos forstöðumaður verkefna hjá MIT Industrial Liaison Program djúptækniáherslur MIT. Leiðin lá einnig í MIT Media Lab, þar sem rannsóknir á sviði tækni, vísinda og skapandi greina eru samofnar og þverfaglegt hugvit er í forgrunni. Vísindagarðar heimsóttu MIT.nano, sem er miðlæg rannsóknaraðstaða á heimsmælikvarða fyrir vísindi og verkfræði í nanótækni. Þar tók á móti hópnum Vladimir Bulovic, stofnandi og forstjóri rannsóknardeildarinnar. Að því loknu heimsóttu Vísindagarðar MIT Open Learning, þar sem Kathleen Kennedy, frumkvöðull á sviði gervigreindar, tækni og nýsköpunar, kynnti nýjustu þróun í gervigreind og tengingu hennar við rannsóknir og menntun. Einnig sagði MIT Misty frá samstarfsprógrami MIT við erlenda háskóla fyrir nemendur og rannsakendur. Til viðbótar við MIT, heimsóttu Vísindagarðar hönnunar- og nýsköpunarfyrirtækið IDEO, sem hefur verið í fararbroddi á sínu sviði undanfarna áratugi. Þar tóku á móti hópnum þau Ari Adler, meðeigandi og framkvæmdastjóri og Jenna Fizel, framkvæmdastjóri Global Head of Emerging Technology hjá IDEO.

Fararteymi Vísindagarða samanstóð af framkvæmdastjóra Þórey Einarsdóttur og starfsfólki, þeim Hrólfi Jónssyni, Írisi Hrund Þórarinsdóttur og Gísla Karli Gíslasyni. Ásamt þeim var stjórn Vísindagarða, þau Sigurður Magnús Garðarsson, formaður stjórnar, Linda Jónsdóttir, Kristinn Aspelund, Arna Hauksdóttir, Óli Jón Hertervig, Anna Sigríður Ólafsdottir og Stefán Þór Helgason með föruneyti.

Sérstakar þakkir fá Svafa Grönfeldt fyrir einstaka ferð og gróskumikið samstarf, Lauren Witte fyrir aðstoð við undirbúning og allir þeir sérfræðingar sem tóku á móti hópnum. Einnig eru færðar þakkir til R. Michael Hendrix, höfundar, ráðgjafa og fyrrum meðeiganda IDEO fyrir að koma á tengslum við fyrirtækið.

Vísindagarðar þakka fyrir viðburðaríka ferð og frábærar móttökur í MIT. Fram undan eru spennandi tímar í innleiðingu á stefnunnar.

Næste
Næste

Starfsteymi Vísindagarða stækkar