Stefnumót við gervigreind — viðburður í mýrinni 3. september
Vísindagarðar efna til gervigreindardags í Mýrinni, Grósku 3. september þar sem NVIDIA mun í samstarfi við Advania leiða þig inn í heim gervigreindar með hagnýtri vinnusmiðju og lifandi sýnikennslu. Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast nýjustu lausnum frá einu áhrifamesta tæknifyrirtæki heims.
Eftir hádegi tekur við metnaðarfull dagskrá þar sem fyrirlesarar úr fjölbreyttum atvinnugreinum fjalla um gervigreind út frá nýsköpun, hagnýtingu í daglegu starfi, skapandi nálgun og framtíðarmöguleikum í íslensku samfélagi og atvinnulífi. Dagurinn er kjörinn vettvangur fyrir frumkvöðla og háskólanema sem brenna fyrir nýrri tækni og vilja sækja sér innblástur til að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Að lokinni dagskrá verður þátttakendum boðið uppá léttar veitingar þar sem tengingar, hugmyndir og samtöl flæða áfram.
Dagskráin er tilkynnt síðar en hvetjum áhugasama til að skrá sig á viðburðinn þar sem sætapláss er takmarkað!